Fundargerð 2004-01 --- 12. febrúar
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn að Lágholti 1
fimmtudaginn 12. febrúar kl. 9,15
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson
- NoMU fundur á Íslandi. Rætt um NoMU fund sem SÍSL og SÍL standa fyrir í maí næstkomandi. Ákveðið að boða stjórn SÍL á næsta fund.
- Gamalt efni. Birgir kynnti gamla videóupptöku frá landsmóti á Akranesi 1987. Upptakan kemur frá Guðmundi Norðdahl. Áhugavert efni og mikil heimild. Einnig kynnti hann annað gamalt efni frá Skólahljómsveit Mosfellsbæjar og Lúðrasveit Æskunnar.
- Heimsóknir. Fyrirspurn hefur borist frá Sandefjord í Noregi um heimsóknarskipti. Vísað áfram til hljómsveitarinnar í Reykjanesbæ. Von er á norskri skólahljómsveit í heimsókn til Kópavogs í júní og á landsmót SÍL í vestmannaeyjum koma norskt brassband og finnsk lúðrasveit.
- Ýmis erindi. Ýmis erindi sem borist hafa stjórn SÍSL tekin til umræðu. ekkert bitastætt þar fyrir samtökin eða aðildarsveitir.
- Styrkur frá Menntamálaráðuneyti. Ekki hefur borist svar frá ráðuneytinu varðandi rekstrarstyrk fyrir árið 2004. Stefán Ómar ætlar að ræða við ráðherra.
- Landsmót. Stefnt er að því að halda landsmót í Reykjavík í haust, í umsjón Skólahljómsveitar Grafarvogs. Þarf að fara að ákveða dagsetningar og leggja drög að dagskrá. Stefnt skal að því að undirbúningi sé að mestu lokið fyrir vorið og að drög að dagskrá liggi þá fyrir. Jón Hjaltason stjórnandi hljómsveitarinnar í Grafarvogi verður boðaður á næstu stjórnarfund til að ræða málið.
- LÆ. Rætt um starf LÆ. Stjórnarmenn sammála um að starf Tryggva með sveitinni síðasta haust hafi verið jákvætt og uppbyggilegt. Rætt um hvort keyra eigi LÆ samhliða landsmóti eða ekki.
- Útgáfa. Athuga á með að gefa út nokkur lög í svipuðum stíl og þau lög sem voru síðasta pakka, fyrir vorið. Þau væri þá hægt að nota á landsmótinu í haust.
Össur Geirsson
ritari.