Fundargerð 2004-02 --- 23. mars
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn i Skólahljómsveit Kópavogs
þriðjudaginn 23. mars kl. 08:30
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson, Össur Geirsson og Jón Hjaltason
1. Landsmót. Jón Hjaltason gerði grein fyrir stöðu mála. Búið er að ganga frá húsnæði fyrir gistingu og tónleika. Dagsetningar helgast af vetrarleyfum grunnskólanna í Reykjavík og verður mótið því haldið dagana 5. til 7. nóvember 2004. Gist verður í Foldaskóla og Rimaskóla , en tónleikar verða haldnir í Íþróttamiðstöðinni Dalhúsi. Sundlaug er þarna rétt við hliðina og aðstaða öll nokkuð góð. Rúta verður á staðnum á vegum mótshaldara til að létta undir með flutning milli skóla, ef þörf reynist á slíku. Hugmynd er að fá inni á einhverjum stöðum í borginni til að sveitirnar geti haldið sína eigin tónleika á meðan á mótinu stendur. Ráðhúsið er frátekið fyrir okkur á föstudeginum til slíks tónleikahalds og einnig er möguleiki á tónleikum í göngugötunni í Mjóddinni og víðar. Hugsanlega geta minni hópar og fámennari lúðrasveitir spilað í verslunarmiðstöðvum og víðar þar sem minna pláss er fyrir hendi. Stefnt er að því að dagskrá laugardagsins verði alfarið í Grafarvogi. Rætt um mótssetningu og framkvæmd hennar. Rætt um lög fyrir sameiginlega tónleika og tillögur gerðar að eftirtöldum lögum:
· Fyrir A og B sveitir:
o Hagavagninno Kyrrðo Tveir fílar lögðu af stað í leiðanguro Lagið um litina
· Fyrir C og D sveitir
o Þytur
o Tjarnarmarso Fanfareo Öxar við ána
Einnig var ræddur sá möguleiki að láta allar sveitirnar (A, B, C og D) spila saman eitt lag og þá helst Öxar við ána í útsetningu Malcolma Halloway. Einnig þóttu Marsbúa cha-cha og Ryksugulagið koma til greina.
Einnig var rætt um hvort ekki væri lag að tölvusetja Tjarnarmarsinn fyrir mótið, en hann er nú eingöngu til í handskrifuðum ljósritum.
Ýmis atriði rædd varðandi framkvæmd og tímaáætlun vegna mótsins. Miðað við að þátttökusveitir verði búnar að tilkynna þátttöku og fjölda þáttakenda fyrir 25. september í haust. Rætt um hvort fara eigi fram á greiðslu staðfestingargjalds. Óskað verður eftir grófum hugmyndum um fjölda þátttakenda strax í vor.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 09:30. Strax að þessum fundi loknum hófst sameiginlegur fundur SÍSL og SÍL. Fundargerð þess fundar ritaði Atli Týr Ægisson ritari SÍL.
Össur Geirsson
ritari.