Fundargerð 2004-03 --- 28. apríl

Stjórnarfundur SÍSL

haldinn i Skólahljómsveit Kópavogs

miðvikudaginn 28. apríl kl. 08:30


Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.


  1. NoMU. Rætt um fyrirhugaðan fund NoMU í Reykjavík helgina 7. - 9. maí. Birgir verður fulltrúi SÍSL á fundinum.Rætt um móttöku fyrir fundarmenn í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, til að sýna þeim skólann og jafnvel að fá klarínettukvartett til að leika 2 - 3 lög við það tækifæri. Þá yrði farið á veitingahúsið Fjöruna í beinu framhaldi af móttökunni.  Stefán Ómar tekur að sér að vinna þessi mál.  Einnig rætt um möguleika á því að fara með hópinn á Þingvöll.  Birgir mun ganga frá skýrslu SÍSL og flytja hana á fundinum.  Ákveðið að boða stjórn SÍL á næsta fund okkar til að ganga frá lausum endum fyrir fundinn.
  2. Landsmót. Mótshaldarar eru að undirbúa mótið og von er á bréfi frá þeim innan skamms.
  3. Útgáfa.   Ákveðið að fresta frekari nótnaútgáfu að sinni.
  4. LÆ. Birgir hefur ekki náð sambandi við Bernhard Wilkinson til að athuga hvort hann gæti tekið að sér stjórnun LÆ næsta haust, en hefur frétt að mikið sé umleikis hjá honum og ólíklegt að hann fáist til verksins. Birgir mun athuga með aðra íslenska stjórnendur.  Ekki er ráðlegt að sinni að fá erlendan stjórnanda fyrir LÆ, fjárhagur SÍSL er ekki tilbúinn í það auk þess sem miðaða er við þrjár helgar á næsta hausti og því hentugra að hafa Íslending í verkinu. Stefnt er að æfingahelgum 15. - 17. október og 29. - 31. október, tónleika 31. október og á landsmótinu 7. nóvember.  Ræddar hugmyndir um að fá atvinnuhljóðfæraleikara til að koma inn á æfingahelgarnar með einhvers konar €œmaster-class€ fyrir þátttakendur.
  5. Kveðja frá Kanada.  Birgir kom með kveðjur frá Denis Beck, formanni kanadískra hljómsveitasamtaka, sem heimsótti okkur síðasta sumar. Hann hefur sent okkur nótur af kanadískum lögum sem forvitnilegt verður að kíkja á.
  6. Dagur lúðrasveitanna.  Hafnarfjarðarbær er mjög jákvæður gagnvart því að fá hljómsveitir í heimsókn í bæinn þann dag. Bæjaryfirvöld munu leggja til íþróttahúsið við Strandgötu, hátíðarflöggun í bænum og auglýsingar. Foreldrafélag Skólahljósmveitarinnar í Hafnarfirði hefur hafið vinnu við að undirbúa daginn og nú er bara að vonast til að sem allra flestar sveitir sjái sér fært að mæta í Hafnarfjörðinn þann 5. júní.  Nánari tilhögun verður auglýst síðar. Stefnt er að því að hengja borða með merkjum samtakanna yfir Strandgötu og skipuleggja skrúðgöngur sem víðast, auk þess að þær sveitir sem ekki marsera fái aðstöðu til að leika sína tónlist sem víðast um bæinn.  Stjórn SÍSL lýsir yfir mikilli ánægju með þennan framgang mála.
 

Næsti fundur ákveðinn kl. 08:30, þriðjudaginn 4. maí í húsnæði Skólahljómsveitar Kópavogs.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00
 

Össur Geirsson

ritari.