Fundargerð 2004-04 --- 4. maí

Stjórnarfundur SÍSL

haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs

þriðjudaginn 4. maí 2004 kl. 08:30

Mættir á fund voru Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson frá SÍSL og Vilborg Jónsdóttir og Jón Ingvar Bragason frá SÍL.

  1. NoMU fundur. Skipulag fundarins um næstu helgi rætt. Fundargestir koma kl. 16 á föstudag, nema Finnarnir sem koma á miðvikudag og fimmtudag. Fundur hefst á föstudegi kl. 18.00 og kvöldverður kl. 20:00. Farið yfir matseðla þá sem í boði eru. Laugardagur: fundur frá kl. 9 - 13. Seinni hluti laugardagsins verði notaður í útsýnisferðir fyrir útlendingana.  Niðurstaðan varð sú að leigja 14 manna bíl og keyra í Bláa Lónið og koma við í Svartsengi á bakaleiðinni. Þaðan verður farið í Tónistarskólann í Hafnarfirði, þar sem gestum verður boðið að skoða skólann og klarínettukvintett undir stjórn Ármanns Helgasonar mun leika nokkur lög.. Eftir það verður farið á veitingahúsið Fjöruna í Hafnarfirði og snæddur kvöldverður.  Eftir kvöldverð væri þá hægt að aka hring um Reykjavík á leiðinni inn á hótel.  Á sunnudeginum er svo aftur fundur frá kl. 9 til 13 og þá fara erlendu gestirnir beint í flug.
  2. Dagur lúðrasveitanna.  Undirbúningur í góðum farvegi hjá Stefáni Ómari og félögum hans í Hafnarfirði. Rætt um að bjóða upp á veitingar í lok dagsins, t.d. pylsur og drykki. Reyna á að fá kostendur í það verkefni. Næsta skref er að athuga með þátttöku og ætla Hafnfirðingar að hringja út á næstu dögum og heyra hljóðið í fólki. Vonandi sjá sem allra flestir sér fært að mæta í Hafnarfjörðinn þennan dag.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:00

 

Össur Geirsson

ritari.