Fundargerð 2004-05 --- 1. júní
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn að Lágholti 1
þriðjudaginn 1. júní 2004 kl. 09:30
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
- Landsmót. Borist hefur athugasemd frá Kára Einarssyni á Seltjarnarnesi vegna tímasetningar landsmótsins, þar sem það kemur inn í vetrarfrí þeirra. Reynt var að boða Jón Hjaltason á fundinn vegna þessa en ekki náðist í hann. Ljóst er að vetrarfrí eru á mismunandi tímum milli sveitarfélaga og jafnvel innan sveitarfélaga og því erfitt að finna helgi sem öllum hentar.
- Dagur lúðrasveitanna. Rætt um dag lúðrasveitanna sem haldinn verður hátíðlegur þann 5. júní nk. Tímasetningar ræddar. Byrjað verður fyrr við Hrafnistu og Suðurbæjarlaug en aðra staði (12:45) Búið er að framleiða barmmerki vegna dagsins og munu allir þátttakendur fá eitt slíkt. Marseringaleiðir nokkuð langar, ákveðið að stytta þær eitthvað.
- NoMU fundur. Farið yfir NoMU fundinn sem haldinn var hér á landi í maí. Fundarhöld gengu vel alla helgina. Skipulagið var nokkuð gott bæði hvað varðar fundina sjálfa og útsýnisferðir sem farnar voru. Fundargestir voru almennt mjög ánægðir með helgina. Norræna blásarasveitin heldur áfram að festa sig í sessi. Næsta námskeið verður í Stokkhólmi í sumar og árið 2005 verður námskeið í Færeyjum. Rædd var sú hugmynd að benda á Bernhard Wilkinson sem stjórnanda á námskeiðinu í Færeyjum. Litháen er á leið inn í NoMU og líklegt má telja að Norræna Blásarasveitin verði þar árið 2006. Svíar eru með hugmyndir að sameiginlegum æfingum með sinfónískum sveitum og blásarasveitum í Kalmar. Fleiri hljómsveitarmót eru víða um Svíþjóð á hverju ári, en líkl. hentar Gautaborgarfestivalið í júní best fyrir okkur Íslendinga vegna tímasetningarinnar, því mörg önnur mót eru í maí. Hugmynd hefur komið fram um það í Svíþjóð að leggja mótið í Norrköping af og stækka Gautaborgarhátíðina.
- Nótur. Birgir sýndi nótur sem borist hafa frá Denis Beck frá Kanada, en hann heimsótti okkur síðastliðið sumar. Nóturnar fara í nótnasafn LÆ.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30
Össur Geirsson
ritari