Fundargerð 2004-06 --- 3. september

Stjórnarfundur SÍSL

haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs

föstudaginn 3. september 2004 kl. 09:00


Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.

  

  1. Landsmót. Stefnt er að landsmóti í Grafarvogi 5. til 7. nóvember í haust.  Þessi dagsetning er valin m.a. vegna þess að þá eru skólarnir í Grafarvogi í vetrarfríi og því auðveldara að fá aðstöðu þar  fyrir landsmótið.  Athugasemd hefur borist frá Kára Einarssyni á Seltjarnarnesi því þar er vikulangt vetrarfrí vikuna fyrir þessa helgi. Þar sem ekkert samræmi er á vetrarfríum í grunnskólum landsins er erfitt að koma til móts við þarfir allra í því sambandi. Ákveðið að halda þessari tímasetningu í haust en taka upp á aðalfundi hvernig tímasetningu á landsmótum sé best háttað. Næsti stjórnarfundur SÍSL verður síðan í Grafarvogi svo hægt sé að líta á aðstöðuna og taka púlsinn hjá mótshöldurum. Nokkur umræða varð um þau lög sem leikin verða sameiginlega á mótinu. Ákveðið að sleppa Öxar við ána af lista yfir sameiginleg lög C-D sveita þar sem það lag sómir sér betur með öllum hópnum.  Einnig rætt um Tjarnarmars, sem hugsanlega er of erfiður, auk þess sem ekki er víst að allar sveitir eigi eintak af honum. Einnig er orðið tímabært að setja hann upp í tölvu og prenta almennilega.
  2.              Listinn lítur því þannig út:

             A+B sveitir:      Lagið um litina 

                                     Hagavagninn

                                     Kyrrð

                                     Tveir fílar lögðu af stað í leiðangur

             C+D sveitir:      Þytur                (Páll P. Pálsson)

                                     Tjarnarmars      (Páll P. Pálsson)

                                     Fanfaremars     (Karl O. Runólfsson)

             Allar sveitir:      Öxar við ána     (Úts. Malcolm Holloway)

                                     Marsbúa cha-cha

                                     Ryksugulagið


    Lagalistinn látinn standa nema óskir komi um annað. Leitað verður eftir aðstoð frá Páli Pampichler vegna tölvusetningar á Tjarnarmarsi. Bæti þarf inn saxófónröddum og hugsanlega einfalda einhverjar raddir fyrir yngri hljóðfæraleikara.

  3. Dagur lúðrasveitanna.  Bókaðar eru sérstakar þakkir til Hafnfirðinga fyrir sérstaklegan góðan dag í júní síðastliðnum. Skipulag og framkvæmd dagsins gekk sérstaklega vel og vonast stjórn SÍSL til að framhald verði á Degi lúðrasveitanna í Hafnarfirði næstu ár.
  4. Styrkur frá Menntamálaráðuneyti.  Stjórn SÍSL lýsir yfir áhyggjum sínum af því að menntamálaráðherra sá ekki ástæðu til að veita styrk til starfs samtakanna á ár.  Þetta setur starfsemi okkar vissar skorður, m.a. vegna Lúðrasveitar Æskunnar.
  5. NoMU fundur.  Farið var lauslega yfir efni síðasta NoMU fundar og þess næsta sem haldinn verður í Olsó og Vilborg Jónsdóttir form. SÍL mun sækja fyrir Íslands hönd.
  6. LÆ.  Líkur eru á að Kjartan Óskarsson muni að nýju halda um tónsprotann á næsta LÆ námskeiði. Sem fyrr er stefnt að LÆ námskeiði helgarnar 15. - 17. október og 29. - 30. október ásamt tónleikum á landsmóti.

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30


Össur Geirsson

ritari