Fundargerð 2004-07 --- 14. september

Stjórnarfundur SÍSL 

haldinn í Foldaskóla, Grafarvogi

þriðjudaginn 14. september 2004 kl. 09:00

Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson, Össur Geirsson og Jón Hjaltason.                     


 

1.      Landsmót SÍSL. Rætt um undirbúning og fyrirkomulag landsmóts. 15 sveitir hafa boðað þátttöku á mótinu en enn er beðið svara frá nokkrum sveitum.  Drög að dagskrá gera ráð fyrir mætingu snemma á föstudeginum og tónleika út um borg og bý fram eftir degi, m.a. í Ráðhúsi Reykjavíkur. eftir kvöldverð verði æfingar á sameiginlegu efni sem spila á við mótsslitin.

Á laugardeginum verða aðaltónleikar mótsins þar sem allar sveitir koma fram og leika sína efnisskrá. Gert er ráð fyrir tíma í sund á milli tónleika. Rætt um að hafa fleiri tónleika en styttri. Hugsanlegt að sveitir sem spili á einum tónleikum mæti sem gestir á aðra tónleika og eigi svo frí á þeim þriðju til að fara í sund. Rætt um að hafa mótssetninguna á laugardeginum strax eftir hádegið. Sveitirnar marseri inn í höllina með fánum og fínheitum. Fulltrúi Reykjavíkurborgar mun mæta og setjið mótið.

Á sunnudeginum er uppi sú hugmynd að hafa opið í skautahöll þeirra Grafarvogsbúa og skemmta sér smástund við skautahlaup.  Mótsslitin yrðu svo strax eftir hádegið með sameiginlegum tónleikum allra sveita auk þess sem LÆ myndi koma þar við og leika 2 - 3 lög. Rætt um að hafa eitthvað sprell á mótsslitunum til að létta yfirbragð þeirra.

Sameiginlegu lögin:  Eftir nokkrar umræður var ákveðið að taka Tjarnarmarsinn út a sameiginlegri efnisskrá C-D sveita, þar sem meiri tíma þarf til að tölvusetja marsinn með leiðréttingum og viðbótum frá Páli Pampichler.  Hugmynd kom fram um að nota í staðinn The Thunderer eftir John Philip Sousa, því þann 6. nóvember eru einmitt liðin 150 ár frá fæðingu hans.

Ákveðið að Jón Hjaltason sendi út sem fyrst bréf til allra sveitanna með upplýsingum um mótið og fyrirkomulag skráningar.

 

Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 10:30 

Össur Geirsson

ritari.