Fundargerð 2004-08 --- 8. október

Stjórnarfundur SÍSL

haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs

föstudaginn 8. október 2004 kl. 09:30


Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson. Kári H. Einarsson sat síðari hluta fundarins.                       

 

  1. Lúðrasveit Æskunnar. Mestur tími fundarins fór í að ræða málefni LÆ og stöðu hljómsveitarinnar í dag. Ljóst að við þurfum að endurskoða hljómsveitina, bæði markmið hennar og framkvæmd. Enn sem fyrr eru umsækjendur einungis frá sömu hljómsveitunum og áður, með ánægjulegri fjölgun umsókna frá Hornafirði. Fjórar hljómsveitir eiga um 80% þátttakenda og því einungis um 20% sveitarinnar úr öðrum hljómsveitum á landinu. Kári Einarsson hljómsveitarstjóri frá Seltjarnarnesi kom á síðari hluta fundarins og gerði grein fyrir því hvers vegna engar umsóknir koma frá hans hljómsveit. Orsakanna þar að leita í miklum önnum hans sveitar og litlum áhuga hljóðfæraleikaranna á að bæta LÆ á sína dagskrá.
 

Fleira ekki gert og fundi slitið um kl. 11:00 

Össur Geirsson

ritari.