Fundargerð 2004-09 --- 26. október
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Skólahljómsveit Kópavogs
þriðjudaginn 26. október 2004 kl. 09:00
Mættir á fund voru Birgir D. Sveinsson, Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson.
Jón Hjaltason, mótshaldarai næsta landsmóts var boðaður á fundinnn en boðaði forföll vegna veikinda.
- Landsmót. Aðalefni þessa fundar var komandi landsmót og framkvæmd þess. Stjórn SÍSL hefur nokkrar áhyggjur af framkvæmd mótsins, upplýsingaflæði frá mótshaldara hefur verið lítið, bæði varðandi þátttöku og skipulag dagskrár. Einnig er hætt við að verkfall grunnskólakennara setji strik í reikninginn með gistiaðstöðu, verði ekki búið að leysa vinnudeiluna fyrir landsmót. Hringt var í Jón Hjaltason af fundinum til að fá upplýsingar um framgang mála. Fram kom m.a. að fundur yrði hjá mótshöldurum í kvöld, þar sem gengið verður frá ýmsum málum. Jón beðinn um að senda frekari upplýsingar út til þátttökusveitanna. Rætt um hvort stjórn SÍSL eigi að skipta sér meira af skipulagningu landsmóta í framtíðinni, en það hefur verið stefnan hingað til að mótshaldarar séu ábyrgir fyrir landsmóti hverju sinni. Ljóst er að á næsta aðalfundi þarf að taka upp ýmis mál sem varða skipulag landsmóta og Lúðrasveit Æskunnar. Það er því von á fjörugum fundi í Grafarvogi eftir rúma viku. Ákveðið að ítreka við mótshaldara að skila af sér fullbúinni dagskrá sem fyrst og boða fund með þeim á fimmtudagsmorgun til að ganga frá öllum lausum endum. Eftir því sem best er vitað verður þátttaka mjög góð á landsmóti, eða um 700 börn og unglingar, og því grundvöllur fyrir góðu og skemmtilegu móti.
- Lúðrasveit Æskunnar. Rætt um framkvæmd síðustu æfingahelgar og farið yfir skipulag þeirrar næstu. Æfingar næstu helgar verða sem hér segir:
- Aðalfundur. Farið yfir efni næsta aðalfundar. Nú er aðeins eitt ár frá síðasta aðalfundi, en samkvæmt lögum SÍSL skal halda aðalfund á hverju landsmóti. Ræddur möguleikinn á að kalla fundinn auka-aðalfund en fallið frá því. Fram kom að þeir sem nú skipa stjórn SÍSL eru farnir að hugsa sér til hreyfings enda löngu kominn tími á stjórnarskipti. Spurningin einungis hvort það gerist á aðalfundinum núna eða á Akranesi eftir ár.
17:00 - 19:00 Samæfing
19:00 - 19:30 Nestishlé
19:30 - 21:00 SamæfingLaugardagur 30. okt.10:00 - 12:15 Samæfing
12:15 - 13:15 Hádegishlé (Boðið upp á pizzur)
13:15 - 15:00 Samæfingar og/eða raddæfingar
15:00 - 15:30 Miðdegishlé
15:30 - 17:00 SamæfingSunnudagur 31. okt.
12:00 - 13:15 Uppstilling og stutt æfing í Ráhúsi Reykjavíkur
13:15 - 14:00 Tími til að snurfusa sig aðeins fyrir tónleikana
14:00 - 15:00 Tónleikar í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Fleira ekki gert og fundi slitið um kl. 11:20
Össur Geirsson
ritari.