Fundargerð 2004-10 --- 28. október
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn í Foldaskóla
fimmtudaginn 28. október 2004 kl. 08:30
Mættir á fund voru Stefán Ómar Jakobsson og Össur Geirsson ásamt Jóni Hjaltasyni mótshaldara næsta landsmóts.Birgir D. Sveinsson var forfallaður vegna utanlandsferðar.
1. Landsmót. Rætt var vítt og breytt um dagskrá komandi landsmóts. Að sögn mótshaldara hafa sveitir frá 15 stöðum boðað komu sína á mótið með samtals 700 hljóðfæraleikara í 26 hljómsveitum. Þátttökulistinn er sem hér segir:
| o Akranes | 1 sveit | |
| o Akureyri | 1 sveit | |
| o Austurbær (Rvk.) | 1 sveit | |
| o Blönduós | 1 sveit | |
| o Breiðholt og Árbær | 2 sveitir | |
| o Garðabær | 2 sveitir | |
| o Grafarvogur | 3 sveitir | |
| o Hafnarfjörður | 2 sveitir | |
| o Höfn í Hornafirði | 1 sveit | |
| o Kópavogur | 3 sveitir | |
| o Mosfellsbær | 2 sveitir | |
| o Selfoss | 2 sveitir | |
| o Seltjarnarnes | 1 sveit | |
| o Vestmannaeyjar | 1 sveit | |
| o Vesturbær (Rvk) | 3 sveitir |
Þetta verður að teljast dágóð þátttaka og boðar vonandi sterkt og skemmtilegt landsmót.
Þar sem dagskráin var ekki orðin fullmótuð fór talsverður tími í að sníða af henni ýmsa vankanta og ganga frá lausum endum. Í lok fundar var nokkuð góð mynd komin á hana en Jóni falið að ganga frá henni í endanlegri mynd og send út til sveitanna.
Dagskráin verður því nokkurnvegin á þessa leið (Birt með fyrirvara um breytingar, endanleg dagskrá kemur frá Jóni):
Föstudagur 5. nóvember. | ||
| 12:00 - ?? | Hljómsveitir mæta í Grafarvoginn (Foldaskóla) og fá létta hressingu. Koma sér fyrir á gististöðum, ýmist í Folda- eða Rimaskóla | |
| 14:00 - 18:00 | Þátttökusveitir fá möguleika á að leika stutta tónleika í Reykjavík ( Mjódd , Eiðistorg og Ráðhús Reykjavíkur) | |
| 18:00 - 19:30 | Kvöldverður í Foldaskóla | |
| 19:30 - 22:00 | Sameiginleg lög æfð í íþróttahúsi Fjölnis. Byrjað verður á sameiginlegu efni A-B sveita, síðan efnið sem allar sveitir spila saman og endað á sameiginlegum lögum C-D sveitanna. | |
| Eftir samæfingu verður boðið upp á €œbíósýningar€ á gististöðum (DVD og skjávarpi) | ||
Laugardagur 6. nóvember | ||
| 08:00 - 09:30 | Morgunverður | |
| 10:00 - 11:30 | Fyrri tónleikar A-B sveita í íþróttahúsi Fjölnis. Allar AB sveitir mæta á tónleikana. | |
| 10:00 - 11:30 | CD sveitum gefst tækifæri á að fara í sund á þessum tíma. | |
| 11:30 - 13:15 | Hádegismatur | |
| 13:15 - 13:45 | Undirbúningur fyrir mótssetningu, sveitir stilla sér upp fyrir inngöngumars. | |
| 13:45 - 14:15 | Formleg mótssetning. Allar sveitir marsera inn í íþróttahús Fjölnis og stilla sér upp á gólfinu. | |
| Örstutt ræðuhöld | ||
| Yngstu nemendur sveita af höfuðborgarsvæðinu spila saman €œGóða mamma€ í hljómandi B dúr. | ||
| Útgöngumars | ||
| 14:15 - 15:30 | Síðari tónleikar A-B sveita í íþróttahúsi Fjölnis. Allar AB sveitir mæta á tónleikana. | |
| 15:30 - 16:00 | Hlé. Boðið upp á létta hressingu í íþróttahúsinu (safi - kaffibrauð og/eða ávöxtur) og tími gefst til að tæma búningsherbergin fyrir C-D sveitirnar. | |
| 16:00 - 17:15 | Tónleikar C-D sveita í íþróttahúsi Fjölnis. Allar AB og CD sveitir mæta á tónleikana. | |
| 17:15 - 18:00 | Frágangur í íþróttahúsi og taka hljóðfæri og annað hafurtastk yfir í gistiskóla. | |
| 18:00 - 20:00 | Kvöldverður. | |
| 20:30 - 00:30 | Lokaball. Jafnframt verður boðið upp á €œbíó€-sýningar á giststöðum eins og á föstudagskvöldinu. | |
Sunnudagur 7. nóvember | ||
| 08:30 - 09:30 | Morgunverður | |
| 09:00 - 11:45 | Frjáls ærslatími. Opið er í sundlaugina fyrir þá sem vilja og í skautahöllina fyrir þá sem vilja það. Það kostar 500 krónur í skautahöllina með skautaleigu, en ekki þarf að borga í sundlaugina. Þeir alhörðustu komast bæði í sund og á skauta. | |
| 10:00 - 12:00 | Aðalfundur SÍSL | |
| 11:30 - 13:15 | Matur | |
| 13:30 - 15:30 | Mótsslit. | |
| Lúðrasveit Æskunnar leikur nokkur lög | ||
| Lúðrasveit Verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika nokkra Sousa-marsa í tilefni af 150 ára afmæli marsakóngsins knáa. | ||
| Í lok mótsslitanna verða sameiginlegu lögin leikin: | ||
| AB sveitir | ||
| CD sveitir | ||
| Allar sveitir saman. | ||
| Birgir D. Sveinsson slítur mótinu. | ||
Föstudagstónleikar. Ekki er búið að skipuleggja tónleika sveitanna á föstudeginum, m.a. vegna ónógra upplýsinga frá þátttökusveitum að sögn Jóns. Jón beðinn um að skipuleggja þetta sem allra fyrst og koma upplýsingunum áframtil sveitanna. Tónleikar verða á Eiðistorgi, í Mjóddinni og í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Máltíðir. Rætt um skipulag máltíða. Matreiðslumenn sem alla jafna sjá um mat í Foldaskóla og eru því heimavanir, skipuleggja máltíðir. Að sögn Jóns hafa þeir góða reynslu af skólamáltíðum og málin því í góðum höndum. Allar máltíðir eru í Foldaskóla. Gert er ráð fyrir um 140 manna hópum í mat í einu og að það taki um 90 - 120 mínútur að afgreiða alla í mat. Jón beðinn um að auglýsa vel fyrirkomulag máltíðanna.
Áhrif verkfalls á landsmótið rædd. Gert er ráð fyrir gistingum í skólastofum. Standi verkfall grunnskólakennara enn yfir þann 5. nóv. er gert ráð fyrir gistingu í miðrýmum í Foldaskóla, íþróttasölum og tónlistarstofum sem eru opnar. Það ætti því að bjargast með gistingu þó verkfalli standi.
Tónleikar. Gert er ráð fyrir að allar sveitir komi á alla tónleika, með þeirri undantekningu að CD sveitum verður gefið tækifæri á sundferð á laugardagsmorgninum. Sveitirnar eru þá ýmist á tónleikun sem áhorfendur eða hljóðfæraleikarar. Baksviðs eru 6 búningsherbergi sem notuð verða til að pakka upp hljóðfærum, hita upp og stemma. Sveitirnar ganga síðan þaðan og inn í salinn þegar þeirra tími kemur. Þegar sveitir hafa lokið tónleikum eiga þær að ganga frá hljóðfærunum sínum og rýma til í búningsherbergjunum fyrir næstu sveit.
Séð verður fyrir nótnastatífum fyrir hljómsveitirnar á laugardagstónleikunum. Eitt sett af pákum er á staðnum og verður hljómsveitum raðað niður eftir því hvort þær þurfa pákur og/eða rafmagn fyrir sína tónleika. Einnig verður uppstillt trommusett, ein bassatromma á statífi og tvær sneriltrommur til staðar. Eitthvað verður af slagverki, en engin mallet hljóðfæri. Best er að hver sveit sjái um sitt handslagverk. Hver sveit þarf að sjá um sitt slagverk, statíf og annað hafurtask fyrir föstudagstónleika.
Mótssetning. Við mótssetningu eiga allar sveitir að marsera inn í íþróttasalinn, án hljóðfæra. Þær sveitir sem byrja tónleikana verða að vera búnar að hita upp og stemma áður en gengið er inn. Gengið verður í tvöfaldri röð inn í salinn eftir ákveðinni leið sem Jón mun kynna síðar og sveitirnar látnar stilla sér upp fyrir framan áhorfendapallana eftir ákveðnu kerfi.
Birgir D. Sveinsson formaður SÍSL mun bjóða gesti velkomna og Stefán Jón Hafstein setur mótið.
Þá munu nýliðar af höfuðborgarsvæðinu (krakkar sem hófu nám í haust) ganga inn og stilla sér upp fyrir frama sveitirnar. Þau spila saman lagið Góða mamma utanbókar (engin statíf) við gífurlegan fögnuð viðstaddra. Ekki er gert ráð fyrir trommuleikurum í þessum hóp, því nokkrir sérvaldir trommuleikarar frá Grafarvogi munu slá takt með hópnum. Jón beðinn um að senda nákvæmar upplýsingar um hvernig hann hugsar sér
Að þessu loknu er marserað út, í sömu röð og við innmarsinn. Gengið er baksviðs og niður í búningsherbergi og stórt opið svæði Þær tvær sveitir sem byrja tónleikana marsera með út og ganga síðan inn aftur þegar allir eru komnir út úr salnum. Það tekur smá stund að stilla upp stólum og statífum fyrir tónleikana svo það verður ekkert stress. Aðrar sveitir sem spila á þessum tónleikum geta farið í sín búningsherbergi til að stemma og hita upp, en aðrir fara upp í áhorfendasvæðið og fylgjast með tónleikunum þaðan.
Aðalfundur. Aðalfundurinn verður að þessu sinni á sunnudagsmorgninum, þegar krakkarnir eru í sundi og á skautum. Við gefum okkur tvo tíma í fundinn.
Á fundinum var Jón beðinn um að hraða gerð endanlegrar dagskrár og senda út sem allra fyrst, helst samdægurs. Fram kom að Jón er að bíða eftir upplýsingum , ljósmyndum og lógóum hljómsveita. Þeir sem eru ekki búnir að senda slíkar upplýsingar inn geta haft samband við Jón í síma 864-4490 eða á netföngin SkolahljomsveitG@simnet.is og jonehja@mmedia.is
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 11:00
Össur Geirsson
ritari.