Fundargerð 2004-11 9. nóvember
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Tónlistarskóla Seljarnarness
fimmtudaginn 9. nóvember 2004 kl. 09:30
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga B. Arnardóttir
- Ný stjórn. Nýjir meðlimir stjórnar skipuðu sér í stöður stjórnarinnar,
- Landsmót. Rætt var um nýlokið landsmót. Nýkjörinn formaður hafði eftir mótið sest niður og sett saman sínar eigin hugmyndir um landsmót. Voru þær tillögur ræddar á fundinum og ákveðið að notast við þessar hugmyndir við næsta landsmót, sem verður á Akranesi.
- Aðalfundur SÍSL. Ræddi stjórnin um tímasetningu aðalfundar og þá helst um hvort ekki væri þægilegra að hafa fundinn utan landsmótsins og þá einnig bjóða upp á annað efni fyrir stjórnendur og fulltrúa sveitanna, svo sem eins og námsskeið eða fyrirlesara, eða annað efni sem nýst gæti stjórnendum vel.
- Nótnaútgafan. Voru útsetningar ræddar og hvort ekki væri áhugavert að virkja unga útsetjara til þess að koma með útsetningar og hugmyndir af efni.
- Lúðrasveit Æskunnar. Starfsemi hennar rædd og þá mest kynningarstarfsemin út í hljómsveitunum og hvernig mætti bæta hana svo að ekki verði erfitt að manna stöður í sveitinni. Lagaval og stjórnendaval var líka á borðinu og hvort það væri ekki hægt að gera hvort tveggja hvetjandi fyrir þáttöku og mætingu.
- Norræn samsipti. NOMU. Ákveðið var að hafa samband við Vilborgu og koma á fundi með henni við tækifæri.
- Póstlistinn. Reyna að byggja upp póstlistann og það er draumur nýrrar stjórnar að fá svör við vinnunni og ábendingar og athugasemdir við efninu sem er að fara frá henni.
Kári H. Einarsson formaður stjórnar
Karen Sturlaugsson gjaldkeri
Helga B. Arnardóttir ritari
Meira var ekki rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir
ritari