Fundargerð 2005-01 --- 14. janúar

Stjórnarfundur SÍSL

haldinn hjá Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

föstudaginn 14. janúar 2005 kl. 09:00


Viðstödd voru Kári H.Einarsson, Karen Sturlaugsson, Helga B.Arnardóttir

 

 


  1. Styrkir.  Fundur hefst á umræðu um nýjan Tónlistarsjóð Menntamálaráðuneytisins.  Ákveðið er að sækja um hjá sjóðnum.


  2. Landsmót.  Rætt var um fyrirkomulag komandi landsmóts. Tímasetning er að komast á og verður mótið snemma haustið 2005. Ákveðið var að hafa samband við Heiðrúnu Hámundardóttur og funda með henni varðandi aðstöðu fyrir landsmót.  Talað var um að finna verkefni fyrir A og B sveitir til þess að flytja á mótinu, og var ákveðið að vera komið með það hreint fyrir páska til þess að hægt verði að senda það út um það leiti.  Er mikill hugur í stjórninni að hafa keppni á komandi landsmóti fyrir C og D sveitirnar. Vinna þyrfti í að finna hentugan dómara fyrir viðburðinn.  Kom einnig sú hugmynd að verkefnavinnu hljómsveitanna á landsmótinu að fá Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths og Paul Griffiths til þess að vera með námskeið í tónlistarsköpun likt og þau hafa verið að gera fyrir Listaháskóla Íslands.


  3. Lúðrasveit Æskunnar.  Tillögur komu fram að námskeiði fyrir L.Æ.  Fá hljómsvetin Jagúar til þess að vera með námskeið þar sem þeir myndu kenna eigið efni og vinna með það nótnalaust og jafnvel virkja svo krakkana í að spila eitthvað með þeim opinberlega í tengslum við það, jafnvel á landsmótinu.


  4. Fundur.  Stjórnin mun boða til fundar fljótlega eftir páska til þess að kynna fyrir stjórnendum breytingar á landsmóti.  Fundarboð verður send út þegar staðsetning og dagsetning verður komin á hreint.  Verður efni varðandi landsmótið dreift út á fundinum.



Ekki fleira rætt og fundi slitið.

Helga Björg Arnardóttir

ritari