Fundargerð 2005-02 --- 25. janúar
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Tónlistarskóla Seltjarnarness
þriðjudaginn 25. janúar 200 kl. 09:30
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson, Helga B.Arnardóttir.
- Fundur. Aðalfundur SÍSL verður haldinn 9. apríl 2005 í Snorrastofu í Borgarfirði. Verður þar kynnt áætlun um komandi landsmót og gögnum um það dreift. Fundarboð verða send út fljótlega.
- Landsmót. Karen hafði samband við Sigrúnu Sævarsdóttur-Griffiths og Paul Griffiths varðandi vinnu þerra á landsmótinu. Þau eru með hugmyndir af verkefnum fyrir sveitirnar á mótinu. Verið er að vinna að því að tala við hljómsvetina Jagúar vegna fyrirhugaðrar þáttöku þerra í vinnu með L.Æ.og þá jafnvel að fá þá einnig til þess að útsetja lög , helst fyrir B-C sveit í erfiðleikastigi. Rætt var um hvaða dómari yrði heppilegastur til þess að dæma á mótinu, ekki komist að neinni niðurstöðu enn með það mál.
- Nótnaútgáfan. Mikill áhugi hjá stjórninni að koma út einhverju af íslenskum popplögum eða þessháttar. Voru höfundarréttarlög rædd og hvort hægt væri að semja við lagahöfunda um útgáfu án borgunar þeirra. Einnig spjallaði stjórnin um nótnalager SÍSL. Kom sú hugmynd upp hvort ekki væri hægt að flokka þetta og setja listann inn á heimasíðu SÍSL, og þetta verði þá jafnvel til sölu á tilboðsverði.
- Dagur Lúðrasveitanna. Ákvað stjórnin að leita til Stefáns Ómars Jakobssonar í Hafnarfirði og kanna hvort þeir þar séu tilbúnir að sjá um þennan dag aftur, þar sem hann tókst svo vel hjá þeim síðast.
- Staðsetning Landsmóts. Rætt var um það hvort komið væri aftur að höfuðborgarsvæðinu að halda landsmót, eftir mótið á Akranesi. Sú athugasemd kom um höfuðborgarsvæðið að erfiðara sé þar að halda krökkunum á sama stað allan tímann.
Ekki var meira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir
ritari