Fundargerð 2005-04 --- Samráðsfundur SÍSL og SÍL

Samráðsfundur SÍSL og SÍL

haldinn hjá Tónlistarskóla Kópavogs

þriðjudaginn 22. febrúar 2005 kl. 09:00


Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson, Helga Bj. Arnardóttir, Vilborg Jónsdóttir formaður SÍL, Jón Ingvar Bragason gjaldkeri SÍL.

 

  1. NOMU.  Fundur hófst á því að Vilborg kynnti fyrir nýrri stjórn SÍSL, verkefni á vegum NOMU.  NOMU blásarasveitin, Kalmar sinfóníuhljómsvetin og einleikara keppni sem verður haldin í apríl.  Fóru inntökupróf fram hér á landi, fyrir þátttöku í blásarasveitinni, helgina áður.
  2. Fulltrúi SÍSL og SÍL á ársfundi NOMU.  Rætt var um hver ætti að vera næsti fulltrúi þessarra tveggja samtaka á ársfundi NOMU í Helsingfors í mars.  Þar sem enginn komst úr röðum SÍSL stjórnarinnar, leitaði hún til fyrrverandi formanns, Birgis Sveinssonar, sem að var það góður að geta hlaupið í skarðið.  Við þökkum fyrir það.
  3. Upplýsingaflæði.  Mikið var rætt um að ekki sé auðvelt að fá fólk (stórnendur, skólastjóra) til þess að koma upplýsingum sem þeir fá sent, á framfæri.  Til dæmis varðandi námskeiðin og inntökupróf á verum NOMU.  Verður þetta til þess að þessar upplýsingar komast ekki á framfæri.  Uppástungur á lausnum ræddar en engin niðurstaða fékkst.
  4. Dagur Lúðrasveitanna ræddur.  Mikið farið í hvort sé rétt að halda þessu áfram vegna áhugaleysis SÍL sveitanna og margra SÍSL sveitanna.  Rætt einnig um staðsetningu og hvernig sé hentugast og best að standa að þessu.  Einnig um það hvort ætti að finna annan tíma.  Niðurstaðan varð sú að halda ætti þetta aftur með svipuðum hætti og var gert síðasta ár með einlægri von um að fleiri sveitir sjái sóma sinn í því að mæta.
  5. The Iceland Windmusic Festival.  Nýjar hugmyndir um SÍL landsmót ræddar.  Hugmyndir þeirra eru þær að reyna að fá sem flestar erlendar hljómsveitir til þess að taka þátt.  Í fyrra komu tvær erlendar sveitir og er vonast til þess að fá fleiri núna.  Spurning um það hvort SÍSL vilji taka þátt í þessu á einhvern hátt, að lúðrasveitir frá okkur muni einnig taka þátt..
 

Ekki fleira rætt og fundi slitið.

Helga Björg Arnardóttir

ritari