Fundargerð 2005-05 --- 3. mars
Stjórnarfundur SÍSL
haldinn hjá Tónlistarskóla Akraness
þriðjudaginn 3. mars 2005 kl. 09:00
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson, Helga Bj. Arnardóttir, Heiðrún Hámundardóttir, Lárus Sigvatsson.
- Landsmót á Akranesi. Nýtt fyrirkomulag landsmótsins kynnt. Húsnæðismál og framkvæmdarhlið mótsins rædd sem og tímasetning. Var það lagt í hendur mótshaldara á Akranesi að skoða húsakost og finna hentugustu lausnir á gistingu og æfingasvæði. Kynntu Heiðrún og Lárus þeirra hugmyndir að tónlistarflutningi á mótinu þar sem mótið er haldið á stórafmælisári tónlistarskólans. Vilja þau endilega að þetta verði með sem bestum hætti gert og vekji mikinn og góðan áhuga á tónlstarlífi bæjarins.
Helga Björg Arnardóttir
ritari