Fundargerð 2005-07 --- 8. apríl

Stjórnarfundur SÍSL.

Haldinn að Háabergi 1, Hafnarfirði, 8. apríl 2005


Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
 

  1. Farið yfir hvaða upplýsingar þurfa að koma fram á umsókn fyrir næsta LÆ námskeið.  Fyrirkomulag námskeiðsins og prufuspil rætt.
  2. Landsmótsbréf samið og umsókn um komandi landsmót samin.  Ákveðið var að í þetta sinn væri hægt að svara á netinu í gegn um heimasíðuna. Einnig var rætt um kostnað við landsmót, ekki tekin nein ákvörðun um verð ennþá.
  3. Heimasíðan.  Ákveðið var að hafa samband við Malcolm Holloway og kanna hvað hann tekur fyrir að halda úti síðunni fyrir SÍSL.


       
      Ekki fleira rætt og fundi slitið.
       
      Helga Björg Arnardóttir, ritari