Fundargerð 2005-09 --- 25. apríl

Stjórnarfundur SÍSL.


Haldinn Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi, 25. apríl 2005.


Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
 
 

  1. Ný heimasíða rædd, varðandi uppsetningu og efni og hverju sé hægt að bæta við hana. 
  2. Farið var í gegn um félagatal SÍSL og einnig kannað hverjir eru búnir að borga félagsgjaldið og hverjir ekki.  Ákveðið var að hringja út þá sem ekki höfðu greitt og kynna einnig fyrir þeim nýtt fyrirkomulag landsmótsins. 
  3. Landsmót á Akranesi.  Spjallað var um matarmál á landsmótinu. Útfærslumöguleikar ræddir sem og rætt um hvernig þetta var gert á öðrum mótum.  Ákveðið var að heyra frá Akranesingum og sjá hvaða lausnir þeir sjái í þessum efnum.  Ákveðið var að ráðast í að fá verðtilboð í boli fyrir krakkana á landsmótinu. 
  4. Dagur lúðrasveitanna.  Ákveðið að drífa upplýsingum um viðburðinn á síðu SÍSL.
     
    Ekki fleira rætt og fundi slitið.
     
    Helga Björg Arnardóttir, ritari.