Fundargerð 2005-11 --- 16. ágúst
Stjórnarfundur SÍSL.
Haldinn í Tónlistarskólanum á Aranesi, 16. ágúst 2005.
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson , Helga Björg Arnardóttir, Heiðrún Hámundardóttir, Lárus Sighvatsson ásamt fulltrúum frá Foreldrafélagi Lúðrasveitar Tónlistarskóla Akraness.
- Landsmót. Farið var yfir á hvaða stöðum hægt verði að láta C og D sveitir spila á og allmargar hugmyndir komu fram í þessum efnum. Farið var einnig yfir hvaða húsakynni yrðu heppilegust til þess að hýsa hljómsveitirnar og hvernig best yrði að leysa æfingaaðstöðumál.
Hljóðkerfi á mótinu. Kanna þarf hvernig hljóðkerfiskostur Akranesbæjar er og hvort hann mæti kröfum Jagúar og Sigrúnar og Paul eða hvort þurfi að leigja búnað.
Farið var í undirbúningsmál. Útgáfa mótsblaðs rædd og hvaða upplýsingar þyrftu að koma þar fram. Setning mótsins rædd og hvernig best yrði að henni staðið, varðandi staðsetningu og efni.
Aðrir hlutir einni ræddir, svo sem að benda þyrfti hljómsveitum á að þó svo fyrirkomulagið sé breytt, þurfi þær samt að koma með statíf. Rekstur sjoppu á ballinu rædd og benda þarf þá meðlimum hljómsveitanna að koma með vasapening, hafi þeir hug á að versla á ballinu.
Farinn var rúntur, þar sem húsakostur og salir fyrir mótið voru skoðaðir.
Fleira ekki rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari