Fundargerð 2005-13 --- 6. september
Stjórnarfundur SÍSL
Haldinn í Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi 6. september 2005.
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson, Helga Björg Arnardóttir og Heiðrún Hámundardóttir.
- Lúðrasveit Æskunnar. Búið er að fá Vetrargarðinn í Smáralind til þess að halda tónleika Lúðrasveitar Æskunnar og Jagúar.
- Landsmót. Farið var yfir skráningar fyrir Landsmótið. Dagskrá mótsins skoðuð ásamt Heiðrúnu, með tilliti til rútuferða, matarmála, staðsetningu hópanna, skipulagningu varðandi upplýsingaflæði og heimasíðu mótsins. Spilastaðir fyrir C/D sveitir verða við Sundlaugina, Safnagerði, Akratorg, Húsasmiðju, Shell og fyrir framan Ráðhúsið. Rætt var um hugsanleg €œPlan B€ og €œPlan C€ og var ákveðið að kanna möguleika á þvi að Vörubílssvið verði sett upp þar sem bönd gætu spilað eða að C/D sveitum yrði skellt í æfingabúðir líkt og yngri sveitum.
- Heimasíðan. Allar upplýsingar um mótið verður að finna á netinu undir www.sisl.is. Upplýsingarnar sem þar verða eru : dagskrá mótsins, myndir, símanúmer og aðrar upplýsingar. Síða landsmótsins verður gerð og haldið uppi af Skagafólki en verður undirsíða af www.sisl.is Hún verður uppfærð stöðugt á meðan á mótinu stendur.
- Matarmál. Leitað hefur verið tilboða í matinn. Enn ekki komin niðurstaða vegna framkvæmdar á morgunmatnum. Spurning um að panta bara sjálf morgunmat eða að láta foreldrafélagið sjá um morgunmatinn.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.