Fundargerð 2005-14 --- 13. september

Stjórnarfundur SÍSL


Haldinn í Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi 13. september 2005.
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardótir.


 

  1. Lúðrasveit Æskunnar.  Farið var í gegn um listann yfir þá sem sótt hafa um að taka þátt í námskeiði LÆ.  Erum við hrædd um að ekki séu allar upplýsingar að komast til krakkanna sjálfra.  Sent var út ýtrekunarbréf með frekari upplýsingum varðandi námskeiðið.

  2. Landsmót.  Send allra síðasta viðvörun til stjórnenda, varðandi það að þetta er allra síðasti séns á að senda inn fjölda nemenda sem ætlar að taka þátt í mótinu.  Hljóðfærakostur ræddur og farið í hvaða hljóðfæri við þurfum að flytja upp á Skaga og vera með á staðnum.  Farið var í það að skipta nemendum niður í Gulu og Rauðu sveitina.  Stjórnendur sveitanna eru eftirfarandi: Gul sveit: Vilborg Jónsdóttir.  Rauð sveit: Jóhann Stefánsson.  Græn sveit: Ingi Garðar Erlendsson.  Blá sveit: Jóhann Morávek.
 
 
Fundi slitið og ekki fleira rætt.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.