Fundargerð 2005-15 --- 20. september
Stjórnarfundur SÍSL.
Haldinn í Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi 20. september 2005.
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
- Landsmót. Farið í vinnu á skiptingu nemendanna í hljómsveitir. Ekki eru enn allir búnir að staðfesta fjölda nemenda í sveitum sínum, þannig að skiptingin er ekki endanleg. Karen tekur að sér að ganga í það verk. Matarpantanir ræddar og farið yfir morgunmats áætlunina.
- Skrifa þarf skýrslu um starfsemi samtakanna á árinu. Þessi skýrsla fer svo með Vilborgu Jónsdóttur á fund norrænu hljómsvetarsamtakanna, sem er haldinn í Finnlandi.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.