Fundargerð 2005-16 --- 27. september

Stjórnarfundur SÍSL.
Haldinn í Tónlistarskólanum í Reykjanesbæ 27. september 2005.
Viðstödd voru Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
 
 

  1. Landsmót.  Brottfall Skólahljómsveitar Árbæjar og Breiðholts rætt.  Kemur þetta sér afar illa þar sem allur matur hefur verið pantaður.  Farið var yfir lokatölur á þeim sem hafa tilkynnt sig á mótið.  Lokahönd lögð á skiptingar í hljómsveitir á námskeiðinu.  Pantanir á mat, bolum og armböndum yfirfarðar.
 
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
 
Helga Björg Arnardóttir, ritari