Fundargerð 2005-17 --- 14. október
Stjórnarfundur SÍSL.
Haldinn í Tónlistarskólanum á Seltjarnarnesi 14. október 2005.
Viðstödd voru: Kari H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
- Landsmót. Landsmótið gert upp. Farið yfir reikninga. Farið yfir það hvað betur hefði mátt fara á mótinu t.d:
- Búa þarf til góðan lista fyrir fararstjóra og umsjónarmenn, þar sem upplýsingar um hvað er ætlast til af þeim kemur skýrt fram.
- Verkefni fyrir C/D hljómsveitrnar á mótinu þóttu lítil. Finna þarf lausn á þeirra vinnu. Spurning hvort hefði átt að skipta mótinu niður í tvennt, A og B sveitir og C og D sveitir sér. Kannski hentar það form betur til þess að sinna hljómsveitunum.
- Dagskrá mótsins, spurning hvort velja þurfi stað með þéttari kjarna, svo ekki þurfi að labba langt á milli.
- Bolamál. Þurfum að hafa skýrari reglur um hvernig þeim er dreift út. Næst myndum við líklegast dreifa bolunum á æfingum. Ansi mikið af bolum sem virðist hafa farið á mis. Um 100 bolir eru úti í sveitunum, sem ekki eiga að vera þar. Við hefðum líka þurft að vera með eitthvað að stærri stærðum í grænu og bláu bolunum.
- Ekki virðist vera hægt að byrja mótið svona snemma. Og einnig virðist erfitt að vera með þennan upplýsingafund snemma á föstudeginum. Þessi dagsetning er líka líklega of snemma. Ætti líka að kanna hvort að morgun upplýsingafundirnir henti betur á kvöldin.
- Varðandi námskeiðishaldið. Söng verkefnið féll vel í krakkana, en ég held að við höfum valdið Sigrúnu og Paul vonbrigðum þar sem þau gerðu ráð fyrir meiri aðstoð frá stjórnendum.
- Næst þyrftum við að láta stjórnendur skipta hljómsveitum sínum í grúbbur : gul, rauð, græn, blá..... Þar sem þeir hafa betri yfirsjón yfir getu krakkanna sinna.
- Viss vonbrigði eru með hversu lítið fjölmiðlar gerðu úr þessu móti. Það vantaði umfjöllun um mótið í sjónvarpi.
- Ekki ráðlegt að hefja æfingadagskrána á sunnudagsmorgninum svona snemma.
- Það vantaði að Cog D sveitirnar spiluðu fyrir A og B sveitirnar. Gott væri fyrir þau yngri að heyra í elstu krökkunum.
- Á Höfn í Hornafirði þurfa mótsslitin að hefjast snemma, þar sem margir ferðast langar vegalengdir heim á leið.
- Búa þarf til góðan lista fyrir fararstjóra og umsjónarmenn, þar sem upplýsingar um hvað er ætlast til af þeim kemur skýrt fram.
Á Döfinni hjá Sísl.
- Finna þarf tímasetningu á Aðalfund.
Fara að huga að útsetningum og nótnaútgáfu.
Keppni C/D sveita. Setja saman keppni og námskeið fyrir stjórnendur.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir.