Fundargerð 2005-18 --- 22. nóvember

SÍSL Stjórnarfundur.
Haldinn að Háabergi 1, Hafnarfirði, 22. nóvember 2005.
Viðstödd voru Kári H.Einarsson, Karen Sturlaugsson, Helga Bj. Arnardóttir
 

  1. Farið yfir reikningsmál vegna Landsmótsins og virðast ellir reikningar vera í höfn.
  2. Aðalfundur SÍSL ræddur og ákveðið að finna ráðstefnusal í bænum fyrir fundinn.  Hugmyndir ræddar um hvernig væri hægt að gera fundinn ánægjulegan og fræðandi fyrir stjórnendur.
  3. Útsetningar.  Útistandandi eru pantanir á efni frá Inga Garðari Erlendssyni og Samúel Samúelsyni.
  4. Starf SÍSL innan Norræna samstarfsins rætt og miklar pælingar í því hvort við ættum að draga okkur út úr samstarfinu.  Stjórn ákvað að leggja þetta fyrir á komandi aðalfundi.
  5. Landsmót.  Rætt um hvort mótið verði á hverju ári eða annað hvort ár.  Tímasetning næsta móts, spurning um vort það henti betur vegna allra ferðanna og til þess að tíminn nýtist betur, að hafa mótið eftir að skólar hefji frí.
 
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
 
Helga Björg Arnardóttir, ritari.