Aðalfundur SÍSL - 21. apríl
Aðalfundur SÍSL
Haldinn að Lækjarbrekku, föstudaginn 21. apríl, 2006, kl 16:00
Viðstaddir voru:
Kári Einarsson Skólalúðrasv. Tónlistarsk. Seltjarnarness
Karen Sturlaugsson Lúðrasveit Tónlistarsk. Reykjanesbæjar
Helga Björg Arnardóttir Lúðrasveit Tónlistarsk. Reykjanesbæjar
Lárus Grímsson Skólahljómsveit Vesturbæjar
Dagný Marinósdóttir Lúðrasveit Tónlistarsk. Reykjanesbæjar
Vilborg Jónsdóttir Skólahljómsveit Austurbæjar
Daði Einarsson Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
Birgir Sveinsson Skólahljómsveit Mosfellsbæjar
Ingi Garðar Erlendsson Lúðrasveit Tónlistarsk. Reykjanesbæjar
Eyþór Kolbeins Lúðrasveit Tónlistarsk. Reykjanesbæjar
Margrét Sigurbjörnsdóttir Skólahljómsveit Kópavogs
Össur Geirsson Skólahljómsveit Kópavogs Aðalfundur settur og fundarstjóri kosinn, Birgir Sveinsson. Fundarritari kosinn, Helga Björg Arnardóttir. Fyrsta mál. Kári, formaður stjórnar SÍSL, las skýrslu stjórnar. Dagur Lúðrasveitanna. Birgir lagði fram þá spurningu hvort samstarfsfundir væru haldnir með SÍL og hvort tími dagsins væri kannski óheppilegur. Vilborg, formaður SÍL, svaraði því að í upphafi var takmarkið að sýna fjölda og vinn hljómsveitanna, kannski væri að breyta vinnuformi dagsins það sem þyrfti og jafnvel að halda hann fyrr. Afstaða þeirra sem viðstaddir voru til þess að halda þessu áfram var jákvæð, en ekki með sama fyrirkomulagi og áður hefur verið. Tillaga frá Daða var sú að halda daginn í Húsdýragarðinum frekar en í Hafnarfirði. LÆ, Jagúar, Smáralind. Daði var mjög ánægður með fyrirkomulagið. Fyrirspurn frá Birgi, hvað er næst á dagskrá hjá LÆ? Kári svara að það verður vonandi vinna með Michael Sweeney eða með Brass Brothers. Jafnvel að hafa samband við Jassvakningu og fá þá til þess að vera í samvinnu um það að fá Brass Brothers til landsins. Ingi Garðar lagði til þá hugmynd, um að setja á stofn ungliða LÆ. Búa til undirsveit til þess að mynda góðan hóp til að búa til hefð fyrir þessarri vinnu, sem yrði þá úrval úr B sveitum. Birgir spyr hvort það sé grundvöllur fyrir því að byrja vinnu með svoleiðis hópi laugardag fyrir landsmót og vinna svo frekar á landsmóti, líkt og gert er með LÆ? Er hægt að hafa þetta sem búðir, sem börnin greiði sjálf fyrir, spyr Vilborg? Kannski væri grundvöllur fyrir þess háttar vinnu. Landsmót. Ábyrgð og framkvæmd næsta landsmóts verður aftur í höndum stjórnar. Landsmótið rætt. Magga benti á að vinna C/D sveita á síðasta móti hafi verið of lítil og mikill tími fór í bið hjá þeim. Stjórn svaraði að þetta form landsmóts gekk ekki alveg upp fyrir allan þennan fjölda og það bitnaði helst á C/D sveitunum. Vinna yngstu hópanna gekk vel, sagði Vilborg, og var ánægð með þá framkvæmd og vinnu sem náðist. Magga benti á að gott hefði verið fyrir krakkana að kynnast öðrum sveitum, en fannst vanta að þau næðu að sýna sína eigin getu. Vilborg spyr því hvort hægt sé að raða getulega í regnbogasveitirnar, hvort hægt sé að treysta stjórnendum til þess verks. Ingi Garðar vildi samt benda á að það sé gott að sumir €œleiði€ og aðrir €œ teiki€. Almenn ánægja var með litabolina á landsmótinu. Vilborg benti á það að erfitt hafi verið að vinna með svona marga slagverksleikara, þegar sveitunum var skeitt saman. Kannski þyrfti að finna sérverkefni fyrir þá. Reikningar stjórnar. Karen, gjaldkeri SÍSL, gerði grein fyrir reikningum stjórnar. Lagabreytingar. Fjórða málsgrein sett í lagabreytingar. Tillaga sett fram að fjórða málsgrein verði breytt úr því að Aðalfundur sé haldinn á landsmóti, í að stjórn boði til Aðalfundar. Lagabreyting samþykkt. Stjórnarkosningar. Stjórn gaf öll kost á sér til endurkjörs og var öll endurkjörin. Kosning endurskoðenda. Vilborg stakk upp á að fá reyndan endurskoðanda í málið. Stjórn gengur í að athuga það mál. Ársgjald SÍSL. Stjórn lagði til að gjaldið yrði það sama og síðasta árs og var það samþykkt. Önnur mál. Stjórn lagði til að ráðinn yrði starfskraftur til þess að sjá um eitthvað af vinnu sem fellur nú á stjórnarmeðlimi, svo sem landsmótsvinna og tilkynningar. Yrði um u.þ.b. 2 tíma vinnu á viku. Lagt undir fundinn og samþykkt. Málefni Norræna samstarfsins. Vilborg Jónsdóttir tók til máls. Hún talaði um að hugsunin á bak við þessa vinnu væri aðallega sú að hafa aðgengi að námskeiðum sem samtökin halda á sínum vegum og einnig að Norðurlöndin hafi aðgengi að okkur. SÍL (Samtök Íslenskra Lúðrasveita) eru í sömu hugleiðingum og við, það er að hætta þessu samstarfi. Vilborg benti á að aðalþáttakendur undanfarið, t.d. í blásarasveit NOMU, hafa verið á vegum SÍSL en ekki SÍL. Hún benti líka á það að á hljómsveitarnámskeiðið í Kalmar hafi enginn frá Íslandi sótt um í fyrra. En næsta sumar verði námskeiðið opnara og fjölbreyttara og ekkert aldurstakmark. NOMU stendur líka fyrir einleikarakeppni sem við getum sent einleikara á og síðar verður einnig haldið strengjanámskeið. Daði vildi meina að okkar nemendur fái helst til lítið út úr svona námskeiðum, þar sem tónlistarkennsla hér á landi sé öðruvísi en á norðurlöndunum og okkar nemendur séu að toppa fyrr. Kári benti líka á það að íslenskir krakkar vinna líka á sumrin og eru ekki eins viljug að sleppa vinnu fyrir svona ferðir. Vilborg hélt áfram og sagði að peningavandamál séu að hrjá NOMU starfsemina eins og er og gengur því verr að fá styrki fyrir íslensku þáttakendurna. Mikill vilji er fyrir því að blásarasveit NOMU komi til Íslands árið 2007 og haldi tónleika. Hún sagði einnig að henni hafi borist fyrirspurn á síðustu ráðstefnu NOMU, um hvort ekki sé hægt að kaupa íslenskar útsetningar. Sú fyrirspurn barst frá sænsku skólalúðrasveitarsamtökunum RUM og einnig frá sænsku lúðrasveitarsamtökunum SOF. Almennum fundarstörfum lokið og Gísli Blöndal steig í pontu og fræddi okkur um €œListina að hafa áhrif€ www.gisliblondal.net Eftir námskeiðið var kvöldverður og yfir matnum var rætt......
- Landsmót, á það að vera árlega eða annað hvert ár? Skiptar skoðanir eru um hvort þetta sé hentugra annað hvert ár. Flestir sammála að það þurfi að vera vinna fyrir A/B og C/D hvert ár, en þá jafnhliða landsmóti annað hvert ár.
- Hvað er að gerast í endurnýjun fólks í SÍL sveitunum? Líkt og í Hafnarfirði, þar sem ekki fæst mannskapur til þess að halda sveitinni lifandi. Hvernig má það vera að það ynnist í röðum SÍL sveita. Er kynning okkar SÍSL fólks, innan okkar sveita ekki skýr, þyrftum við að leiða elstu krakkana okkar inn í SÍL sveitirnar? Er vandinn sá að þessir krakkar eru hættir að æfa sig? Er það verkefnavalið?
- Aftur að landsmótinu. Framkvæmd aukafólks(aðstoðarfólks) þyrfti að vera skýrari. Fólk var sumt ekki aktíft í aðstoðarvinnunni og þar af leiðandi ekkert gagnlegt fyrir þá sem voru að stjórna hljómsveitunum. Athuga þarf með verklagsreglur fyrir aðstoðarfólkið. Voru stjórnendurnir að valda A/B sameinuðu hjómsveitum sínum á mótinu? Er ekki soldið erfitt að mæta inn í hópana óséða og eiga að vinna með þá þannig? Ætti kannski að getuskipta sveitunum alveg og að treysta eigi stjórnendum að skipta hónum sínum niður eftir getu og raða í sveitirnar út frá því?
- Kári kynnti útgáfuhugmyndir stjórnarinnar og sagði að það væri draumur stjórnarinnar að koma Júróvisjónlögunum út sem fyrst.
Fundurinn leystist upp og fólk hélt heim. Helga Björg Arnardóttir, ritari