Fundargerð 2006-1 --- 31. janúar
Stjórnarfundur SÍSL, 31. janúar 2006.Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
Lagt á ráðin með aðalfund. Klára þarf fundargerðir og senda út bréf og boða til aðalfundar. Dagsetning á aðalfundi er ákveðin 21. apríl og ákveðið er að halda fundinn á höfuðborgarsvæðinu. Ákveðið var að kanna hvort sniðugt yrði að fá einhvern inn á aðalfundinn til þess að vera með fyrirlestur eða kynningu á einhvern hátt. Nótnaútgáfan rædd. Nokkur stykki í sigtinu meðal annars frá Martin Markvoll, Inga Garðari Erlendssyni, Samma og fleirum. Vinna þarf í þeim málum, fara yfir útsetningar og fleira. Enn er verið að leita að fyrirlesara til þess að vinna með SÍSL í vor, þar sem draumur stjórnarinnar er sá að hald námskeið fyrir stjórnendur og jafnvel fyrir LÆ.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg ArnardóttirRitari.