Fundargerð 2006-2 --- 17. mars

Dagsetning: 
Fri, 17/03/2006

Stjórnarfundur SÍSL, 17. mars 2006.

 

Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.  

 

Vilborg hafði samband við okkur vegna ferðar sinnar á aðalfund NOMU og bað okkur um að skrifa skýrslu um starf okkar í vetur. Að þessu sinni eru tveir nemendur að taka þátt í verkefnum á vegum NOMU. Þau hljóta þar af leiðandi styrk frá okkur. Nótnaútgáfan. Martin Markvoll sendi sínar útsetningar fyrir A sveit. Kári prófaði verkin á sinni sveit og sagði verkin ganga vel. Annað verk hefur borist frá Lárusi Grímssyni sem hann hefur verið að nota. Samþykkt var að að setja lögin frá Martin sem fyrst í prentun. Samþykki hefur fengist frá Þorvaldi B. Þorvaldssyni fyrir að gefa út útsetningar af Júróvisjónlöum hans. Farið verður yfir útsetningarnar hans Inga og þær gerðar tilbúnar fyrir útgáfu. Aðalfundur SÍSL. Útkljá þarf málið um tíðni landsmótanna. Drög stjórnar er að vera með mót fyrir lengra komar sveitir, LÆ og stjórnendur og svo vera með mót fyrir A/B sveitir að Höfn eftir rúmt ár. Athuga þarf sali fyrir fundinn, matur verður í boði stjórnarinnar.  

 

Ekki fleira rætt og fundi slitið.

 

Helga Björg Arnardóttir ritari