Fundargerð 2007-01 --- 2. febrúar 2007

Dagsetning: 
Fri, 02/02/2007

 

Viðstödd voru : Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsdóttir og Helga Björg Arnardóttir.

Rætt var:

  • Fundur Nomu í Kaupmannahöfn í mars. Ákveðið var að Kári fari út og sitji fundinn.
  • Landsmót. Höfn í Hornafirði. Dagsetningin sem er komin er 12-14 október og er hún birt með fyrirvara um breytingar. Þar erum við að blása til móts fyrir A og B hljómsveitir.
  • C-D mót. Stjórnin veltir fyrir sér hvort ekki sé nauðsynlegt að halda eitt sameiginlegt mót fyrir þær. Tímasetning þess verður tilkynnt síðar. 
  • Nótnaútgáfa. Þrjú stykki eru tilbúin til útgáfu og verða þau sett í prent innan bráðar.  

Ekki var fleira rætt og fundi slitið.

Helga Björg Arnardóttir

ritari