Fundargerð 2007-06 --- 8. maí 2007
Stjórnarfundur SÍSL, þriðjudaginn 8. maí 2007.
Viðstödd voru Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
Hugmynd kom um að vera með ný lög eða útsetningar sem sveitirnar á mótinu á Höfn myndu frumflytja. Er stjórnin með hugmyndir að tveimur til þremur stykkjum þannig að það þyrfti að fá eitt stykku í viðbót.
Farið yfir hvað þarf að klára vegna undirbúnings vegna landsmóts. Fara þarf í hönnun merkis eða medalíu og lógó á boli. Gengið var úr skugga að gistipláss og æfingaaðstaða sé komin á hreint. Ákveðið var að fara út í það að búa til eigulegan grip sem að hver skóli getur tekið með sér heim og sett upp til minningar um þáttöku á mótinu.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.