Fundargerð 2007-02 --- 20. febrúar
Stjórnarfundur SÍSL.
Haldinn þriðjudaginn 20. febrúar 2007, í Tónlistarskólanum í Keflavík.
Viðstödd voru: Kári H. Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
Landsmót. Farið yfir dagskrá og punkta fyrir komandi landsmót, vegna fundar SÍSL stjórnar við aðstandendur landsmótsins á Höfn. Nokkrar hugmyndir ræddar varðandi í hvaða vinnu væri hægt að fara með krakkana. Sú hugmynd kom að setja af stað úrvalssveit B hljómsveita og að hún hittist áður og vinni smá verkefni sem hún flytji á mótinu. Kannski það sé góð hugmynd til þess að vekja áhuga yngri nemendanna á vinnu hljómsveitarinnar. Dagsetning landsmótsins verður 12.-14. oktober.
Ársgjöld. Farið verður af stað með það að rukka ársgjöld fyrir skólaárið 2006-2007.
Landsmót eldri sveita. Spjallað var um að halda mót fyrir eldri sveitirnar í febrúar/ mars 2008.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari
Dagskrá landmóts Höfn -fyrsta uppkast-
Föstudagur
Skráning og kvöldmatur
Fyrsta æfing
Setning Landsmóts (hugmynd um að vera búin að setja á stofn úrvalssveit yngstu krakkanna og að hún spili á setningu mótsins)
Laugardagur
Morgunmatur
Æfing
Hádegismatur
Skoðunarferð/skemmtiferð
Æfing
Kvöldmatur
Skemmtun/Ball
Sunnudagur
Morgunmatur
Tónleikar
Mótsslit
Hádegismatur
Heimferð