Fundargerð 2007-03 --- 6. mars 2007

Dagsetning: 
Tue, 06/03/2007

Stjórnarfundur SÍSL, 6. mars 2007.
Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.


Ferð Kára og Karenar til Hafnar í Hornafirði. Farið yfir aðstæður og rætt hentugustu útfærslur á gistingu og mataraðstöðu. Fleiri atriði varðandi boli á hljómsveitirnar, fána, merki og armbönd rædd.

Skrifað var bréf  sem sent verður til allra meðlima SÍSL. Þar er talið upp upplýsingar um komandi landsmót og fleira.

Farið yfir dagskrá fyrirhugaðs NOMU fundar sem Kári fer á helgina 9. - 11. mars.


Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir
Ritari.