Fundargerð 2007-04 --- 27. mars 2007

Dagsetning: 
Tue, 27/03/2007

Stjórnarfundur SÍSL, 27.mars 2007
Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.


Farið yfir félagalista SÍSL fyrir innheimtu ársgjalda SÍSL.

Kári gerði grein fyrir ferð sinni til Danmerkur á fund NOMU. Þar kom það greinilega í ljós að við erum svolítið sér á báti varðandi rekstur á samtökum okkar hérlendis, þar sem við erum öll að vinna þetta á sjálfboðaliða-grundvelli. Til þess að sinna öllu þessu starfi sem er upp á að bjóða þyrfti að vera með einhvern sem heldi utan um þetta fyrir okkur samtökin. Mikið og fjölbreytt starf er í gangi sem við nýtum okkur lítið en þyrftum að komast betur inn í og nota, þar sem mikið skemmtilegt er í gangi, bæði fyrir hljómsveitir og stjórnendur.

Landsmót. Efst á lista er að kanna með matartilboð fyrir mótshelgi. Hugmyndir um dagsetningu á móti fyrir eldri sveitir ræddar.


Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.