Fundargerð 2007-07 --- 11. júní

Dagsetning: 
Mon, 11/06/2007

Stjórnarfundur SÍSL, Hafnarfirði 11. júní.
Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.

Landsmót Höfn.
Farið var yfir þær umsóknir sem höfðu þegar borist fyrir landsmót. Fjöldinn stendur nú í um það bil 170 krökkum. Skemmtunin á föstudagskvöldinu er nánast frágengin en enn á eftir að finna út viðeigandi hljómsveit fyrir laugardagskvöldið.
Ræddir voru möguleikar á einstaklingi til þess að vinna með slagverksfólkinu. Velja þarf einnig stjórnendur til þess að vinna með regnbogasveitirnar. Verkum verður dreift þegar nær dregur.

Skemmtiferðina þarf að útfæra en hugmynd er komin um það keyra út á sand sem er rétt fyrir utan bæinn. Þar er margt skemmtilegt hægt að gera.

Haft var samband við útsetjara til þess að útsetja eitthvert fínt lag fyrir mótið. Þá erum við komin með nýja útsetningu fyrir allar hljómsveitirnar. Það fer í prentun í lok ágúst.


Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari


Dagskrá landmóts Höfn    -annað uppkast-


Föstudagur  Skráning og kvöldmatur
   Fyrsta æfing
Setning Landsmóts (hugmynd um að vera búin að setja á stofn úrvalssveit yngstu krakkanna og að hún spili á setningu mótsins)

Laugardagur  Morgunmatur
   Æfing
   Hádegismatur
   Skoðunarferð/skemmtiferð
   Æfing /bolum dreift
   Kvöldmatur
   Skemmtun/Ball

Sunnudagur  Morgunmatur
   Tónleikar
   Mótsslit
Hádegismatur
Heimferð