Fundargerð 2007-08 --- 21. ágúst
Stjórnarfundur SÍSL 21. ágúst 2007.
Haldinn í Reykjanesbæ.
Mætt voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
Landsmót á Höfn. Farið var yfir þá sem tilkynnt hafa þátttöku á mótinu. Stendur talan nú í 450 þáttakendum. Unnið var í dagskrá mótsins og kostnaðarliðir ræddir. Enn eru ekki allar tölur komnar en svo virðist sem verð á mann verði í kring um 7.500 kr. Þetta er ekki endanlegt verð, það kemur fljótlega. Val á stjórnendum til þess að sjá um sveitirnar rætt og verður kannað hvort ætti ekki að hafa tvo stjórnendur á hverja sveit. Farið var yfir val á verkefnum og ákveðið að hafa þau að hluta til í höndum þeirra stjórnenda sem veljast á sveitirnar og einni verða fengin ný stykki fyrir hverja sveit til þess að spila.
NoMu fundur í september.
Vilborg Jónsdóttir fer fyrir hönd SÍL og SÍSL á fund NoMu að þessu sinni.
Ekki fleira rætt að þessu sinni og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.