Fundargerð 2007-09 --- 9. september 2007
Dagsetning:
Sun, 09/09/2007
Stjórnarfundur SÍSL. 9. september 2007.
Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.
Unnið var í dagskrá landsmótsins. Skipulagsatriði rædd, matur, æfingaaðstaða og kvöldvökur. Skipting stjórnenda á hljómsveitir var skoðuð nánar. Skrifað var dreyfibréf sem sent var út til meðlima SÍSL, sem veitti nokkrar upplýsingar um það sem komið er á hreint um mótið.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.