Fundargerð 2007-13 --- 5. desember 2007
Stjórnarfundur SÍSL,
miðvikudaginn 5. desember 2007. Viðstödd voru. Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Börg Arnardóttir.
Nótnaútgáfa. Rætt var um að undirbúa fleiri lög og útsetningar til útgáfu. Sú hugmynd kom einnig að gefa út verk eftir Pál P. Pálssonar í tilefni af áttræðis afmæli hans, sem hentar hljómsveitum innan samtakanna. Einnig kom upp sú hugmynd að vinna að tónleikum með verkum Páls, í samvinnu með SÍL. Farið verður í að kanna áhuga á því.
Landsmót. Farið yfir hvað hægt verður að gera með krökkunum í Reykjanesbæ.
Borist hefur fyrirspurn frá Eistlandi um hvort lúðrasveit þaðan mætti taka þátt í mótinu. Útskýrt hefur verið hvernig fyrirkomulag mótsins verður en þau eru enn águgasöm. Húsnæðismálin eru að verða tilbúin í Reykjanesbæ. Send verður út tilkynning um hvenær lokfrestur verður til þess að tilkynna þátttöku. Búið er að fá stjórnendur til þess að vinna með hópunum, þá Thom Hannun og Spiros Xydas. Unnið er að fá fleiri stjórnendur til að koma til landsins og takmarkið er að allar sveitirnar fái leiðbeinanda erlendis frá.
Ekki fleira rætt og fundi slitið.
Helga Björg Arnardóttir, ritari.