Fundargerð 2007-12 --- 24. október

Dagsetning: 
Wed, 24/10/2007

Stjórnarfundur SÍSL,

miðvikudag 24. október 2007 í Reykjanesbæ.

 

Viðstödd voru: Kári Húnfjörð Einarsson, Karen Sturlaugsson og Helga Björg Arnardóttir.  Landsmót Höfn í Hornafirði. Stjórnin ánægð með landsmót að flest öllu leiti. Reynt verður að passa betur upp á mat, að hann verði ekki aftur svo einhæfur og grænmetislaus eins og hann var að þessu sinni. Ekki eru allir reikningar sem tengjast mótinu komnir inn, þannig að ekki er hægt að ganga frá stöðu fjármála enn. 

 

 

Landsmót C sveita í Reykjanesbæ. Áformað er að vera með sama formið á landsmótinu og var á Höfn. Jafnvel breyta lengstkomnu hljómsveitinni í LÆ sveit og fá fyrir hana þá stjórnanda frá Bandaríkjunum, Dan Owens, til þess að vinna með henni. Unnið er í að fá húsnæði fyrir hljómsveitirnar til að æfa í. Dagsetning mótsins verður 15. - 17. febrúar 2008. Það er staðfest dagsetning.  

 

Ekki fleira rætt og fundi slitið.

Helga Björg Arnardóttir, ritari.