Nótnaútgáfa

SÍSL hefur haft það að markmiði allt frá árinu 1985 að láta útsetja íslensk lög fyrir barnalúðrasveitir. Íslenskt efni fyrir skólalúðrasveitir var af skornum skammti á þeim tíma og óaðgengilegt. Þó ýmsir væru að vinna við að útsetja fyrir sínar hljómsveitir var enginn markaður fyrir slíkar nótur og erfitt að komast í þær.
Samtals hafa nú um 100 titlar verið gefnir út, mest útsetningar en einnig frumsamið efni fyrir lúðrasveitir. Ekki er þó um eiginlega útgáfu að ræða heldur kaupa samtökin eintak af útsetningu, fjölfalda hana og selja aðildarhljómsveitunum á kostnaðarverði.
Vinsamlegast athugið að notkun þessara útsetninga er einungis heimil á Íslandi.
 
 
Vinsamlegast athugið að þetta er aðeins listi yfir titla.
Til að hlaða niður nýútgefnum nótum þarftu notendanafn og lykilorð. Það er sent meðlimum sambandsins sem óska eftir því og greitt hafa fyrir nótnapakkana.
 
Hér má finna staðla sem þarf að laga sig eftir til að SÍSL geti keypt útsetningarnar.
 
Staðlar fyrir Sibelius:
 
Staðlar fyrir Finale: