Smiðjur á landsmóti á Akureyri 2018

Á landsmótinu á Akureyri í október 2018 er fjöldi smiðja í boði fyrir þátttakendur á mótinu.

Hér er örstutt lýsing á þeim öllum:

 

Afrískur dans

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 20  –  Tímarammi  5

Umsjón Cheick Bangoura

Í Afríku eru tónlist og hreyfing náskyld fyrirbæri og þrífast varla án hvors annars. Tilvalið tækifæri til að kynnast afrískri tónlist í gegn um danshreyfingar með afrískri tónlist.

 

Balkan

Opið fyrir trompeta, saxófóna, básúnur, barítóna, túbur og slagverk.

Hámarksfjöldi 25  –  Tímarammar  3 og 5

Umsjón Haukur Gröndal

Eins og nafnið bendir til kemur þessi tónlist frá löndunum við Balkanskagann, Serbíu, Búlgaríu, Rúmeníu og fleiri löndum. Yfirleitt fjörug og hröð tónlist sem er blanda af þjóðlagatónlist og tónlist herlúðrasveita.

 

Básúnusamspil

Opið fyrir básúnuleikara

Hámarksfjöldi 16  –  Tímarammi  2

Umsjón Harpa Jóhannesdóttir

Básúnukórar hafa verið starfræktir síðan á miðöldum enda ekki til fallegri hljómur en þessi. Því fleiri básúnur því betra!

 

Big Band Samma

Opið fyrir trompeta, básúnur, saxófóna, rafbassa, trommur og hljómborð.

Hámarksfjöldi 25  –  Tímarammi  5

Umsjón Samúel Jón Samúelsson

Samúel Jón Samúelsson er afkastamesti bigbandstjóri landsins. Hann ætlar kynna fyrir ykkur hvernig er að spila léttfönkaða jazztónlist í stórsveit. Miðað er við hefðbundna samsetningu á bigbandi; saxar, trompetar, básúnur og hrynsveit

 

Blásarasveit

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 60  –  Tímarammi  5

Umsjón Össur Geirsson

Spennandi og krefjandi tónlist verður í boði fyrir þá sem vilja prófa að spila í blásarasveit með öðru fólki en venjulega. Stefnt er að því að vinna með tónlist úr Lord of the Rings.

 

Brasilískt slagverk

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 40  –  Tímarammi  5

Umsjón Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir

Brasilísk götutónlist með fullt af slagverki fyrir alla sem vilja prófa.  Mismunandi trommur og slagverk og allt leikið nótnalaust.

 

Brasssamspil

Opið fyrir alla sem spila á málmblásturshljóðfæri

Hámarksfjöldi 30  –  Tímarammi  2

Umsjón Vilborg Jónsdóttir og Jóhann Stefánsson

Það er alltaf gaman að spila í hóp sem hefur bara málmblásturshljóðfæri. Margvísleg tónlist hefur verið samin fyrir brass-hópa, bæði í klassískum stíl og nútímalegri jazz og poppstíl.

 

Djembe

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 15  –  Tímarammar  2 og 3

Umsjón Cheick Bangoura

Djembe trommur koma frá Vestur-Afríku og það er hægt að framkalla mjög mismunandi hljóð á hana. Hún er því mjög fjölhæf og hefur verið notuð í margskonar tónlist. Þessi smiðja er opin fyrir alla hljóðfæraleikara sem hafa áhuga á að prófa að spila á Djembetrommur.

 

Flautukór

Opið fyrir flautuleikara

Hámarksfjöldi 20  –  Tímarammar  3 og 5

Umsjón Petrea Óskarsdóttir

Flautukórar hafa mjög verið að ryðja sér til rúms undanfarin ár enda samhljómur í flautum einstaklega fagur. Hér gefst tækifæri til að kynnast flautuleik frá nýju sjónarhorni. Þessi hópur er tvískiptur, í boði fyrir styttra komna nemendur (til ca. 9. bekk) og lengra komna nemendur (ca. 9. bekkur og eldri)

 

Hljómsveitarstjórnun

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 20  –  Tímarammar  1 og 4

Umsjón Össur Geirsson

Hvað gerir hljómsveitarstjóri? Gerir hann eitthvað annað en að sveifla höndunum? Langar þig að kynnast því hvernig á að stjórna hljómsveit? Í þessari smiðju er farið yfir helstu handahreyfingar og vinnuaðferðir hljómsveitarstjóra og allir fá að prófa að stjórna.

 

Hornasamspil

Opið fyrir hornleikara

Hámarksfjöldi 10  –  Tímarammi  2

Umsjón Ekki ákveðið

Kjörið tækifæri fyrir hornleikara að spila saman tónlist sem er sérsniðin fyrir þeirra hljóðfæri.

 

Klarinettusamspil

Opið fyrir klarinettleikara

Hámarksfjöldi 30  –  Tímarammar  2 og 3

Umsjón Jóhann Morávek

Kjörið tækifæri fyrir klarinettuleikara að spila tónlist sem er sérsniðin fyrir þeirra hljóðfæri.

 

Klezmer

Opið fyrir flautu, klarinett, trompet, básúnu, bassa/túbu og slagverk

Hámarksfjöldi 16  –  Tímarammi  2

Umsjón Haukur Gröndal

Klezmertónlistin er ættuð frá gyðingum í Austur-Evrópu og er hress og fjörug tónlist sem gjarnan er spiluð í brúðkaupum og öðrum fjörugum veislum. Haukur Gröndal er snillingur í þessari tónlist og býður ykkur að spreyta ykkur á klezmerlögum.

 

Kór

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 40  –  Tímarammar  1 og 4

Umsjón Sigrún Magna Þórsteinsdóttir

Það er fátt sem þjálfar betur tóneyrun okkar en að syngja í kór. Hér er tækifærið til að prófa að syngja í kór með gleðina að leiðarsjósi og án allra skuldbindinga. (Kórinn syngur ekki á tónleikunum) Þetta verður bara skemmtilegt!

 

New Orelans – Second Line

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 30  –  Tímarammi  3 og 5

Umsjón Samúel Jón Samúelsson

Second Line er tónlistarstefna frá New Orelans og er vinsæl tónlist til að spila á götum úti. Þessi tónlist er líka oft notuð í jarðarförum sem eru heldur hressari en jarðarfarirnar á Íslandi 🙂 Allt spilað nótnalaust.

 

Samspilstækni

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 15  –  Tímarammar  1 og 4

Umsjón Emil Þorri og Sóley Björk

Farið verður yfir nokkur helstu atriði þess að spila með öðrum, æfingatækni og aðferðir til að hjálpa við undirbúning.  Hér færðu tækifæri til að prófa þig áfram í samspili með öðrum hljóðfærahópum og í undirbúningi tengdum því.

 

Saxófónsamspil

Opið fyrir saxófónleikara

Hámarksfjöldi 25  –  Tímarammar  3 og 5

Umsjón Gestur Áskelsson

Frábær leið til að njóta sín í samspili með öðrum saxófónleikurum. Samleikur sem beinist að þeirri tónlist semhentar best fyrir saxana.

 

Slagverk og blásarar

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 40  –  Tímarammi  3

Umsjón Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir

Brasilísk götutónlist með fullt af slagverki og nóg pláss fyrir alla blásara og bassaleikara að spila með.  Hér kemur stemmingin beint frá kjötkveðjuhátíðunum og líklegt að dansfæturnir taki við sér líka. Allir fá líka eyrnatappa 🙂

 

Slagverk og flautur

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 30  –  Tímarammi  2

Umsjón Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir

Brasilísk götutónlist þar sem flautuleikarar leika stórt hlutverk með slagverkinu. Hér fá allir að spila á slagverk sem vilja, ekki bara trommuleikararnir. Allir fá líka eyrnatappa 🙂

 

Slagverk fyrir slagverksleikara

Opið fyrir slagverksleikara

Hámarksfjöldi 20  –  Tímarammar  2 og 5

Umsjón Emil, Valdi og Rodrigo

Hér fá trommuleikarar tækifæri á að kynnast fjölbreyttri slagverkstónlist undir leiðsögn þriggja trommukennara. Hefbundnar trommur í bland við mallet-hljóðfæri og slagverk. Þessi hópur er tvískiptur, í boði fyrir styttra komna nemendur (til ca. 9. bekk) og lengra komna nemendur (ca. 9. bekkur og eldri)

 

Steppdans

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 20  –  Tímarammar  1 og 4

Umsjón Ívar Helgason.

Hvern hefur ekki dreymt um að nota skóna sína sem slagverkshljóðfæri? Að búa til flotta ryþma með fótahreyfingum er sérlega góð skemmtun og þjálfar um leið ryþmatilfinninguna. Hollt fyrir alla hljóðfæraleikara.

 

Stúdíó Hof

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 25  –  Tímarammi  4

Umsjón Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Frábært tækifæri til að skoða upptökuhljóðverið í Hofi, kynnast þeirri kvikmyndatónlist sem þar hefur verið tekin upp og sjá hvernig SinfoNord starfar. Sýnd verða brot úr kvikmyndum sem SinfoNord hefur spilað inná.

 

Trompetsamspil

Opið fyrir trompetleikara

Hámarksfjöldi 16  –  Tímarammi  2

Umsjón Kristjón Daðason

Hér fá trompetnemendur tækifæri á að spila fallega tónlist sem hefur verið sérstaklega útsett fyrir trompeta. Án efa verða einhverjar trompetsérhæfðar umræður líka.

 

Ukulele

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 25  –  Tímarammar  2 og 4

Umsjón Elvar Bragi Kristjónsson

Kennd verða undirstöðuatriði í Ukulele-leik og nokkrir vinsælir hljómar sem duga til að spila (og syngja) hressileg lög.

 

Viðhald málmblásturshljóðfæra

Opið fyrir trompet, horn, básúnur, barítóna og túbur.

Hámarksfjöldi 25  –  Tímarammi  1

Umsjón Ingi Garðar Erlendsson

Farið yfir hvernig best er að meðhöndla tréhljóðfærin svo þau endist vel og virki eðlilega. Einfaldar viðgerðir á algengum bilunum og fleira.

 

Viðhald tréhljóðfæra

Opið fyrir flautur, óbó, klarinett og saxófóna

Hámarksfjöldi 25  –  Tímarammi  4

Umsjón Ingi Garðar Erlendsson

Farið yfir hvernig best er að meðhöndla tréhljóðfærin svo þau endist vel og virki eðlilega. Einfaldar viðgerðir á algengum bilunum og fleira.

 

Zumba

Opið fyrir alla

Hámarksfjöldi 30  –  Tímarammar  1 og 4

Umsjón Ingunn M. Halldórsdóttir

Zumbasmiðja þar sem við komum saman og hreyfum okkur við skemmtilega tónlist með það að markmiði að hafa gaman í góðum hópi. Zumba er tilvalin aðferð til að þjálfa ryþmaskyn hjá hljóðfæraleikurum!